Suburbicon er frumsýnd á föstudag
Heimilisfaðir sem gefst ekki upp
Sérkennileg atburðarás fer í gang eftir að fækkar um einn í íbúatölu bæjarins Suburbicon. Glæpamenn ráðast inn á heimili Gardner-hjónanna og myrða húsmóðurina ... en herra Gardner lætur ekki þar við sitja.
Suburbicon er nýjasta myndin eftir George Clooney sem leikstjóra og er hún gerð eftir handriti Coen-bræðranna. Þeir eru auðvitað þekktir fyrir sínar snjöllu og óvæntu sögufléttur og húmor sem oft verður mjög dökkur – enda er myndin bönnuð börnum innan sextán ára!
Suburbicon er frumsýnd á föstudaginn í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói, Akureyri.