CMS Image
Væntanleg
14.10.2026

Bíótöfrar: Raiders of the Lost Ark (1981)

2026

115 mín

Aldurstakmark 12

Enginn texti

Leikstjóri:

Steven Spielberg

Leikarar:

Harrison Ford, Karen Allen, Paul Freeman

Þegar fornleifafræðingurinn og prófessorinn Indiana Jones er fenginn af bandarískum stjórnvöldum til að leita að hinni goðsagnakenndu sáttmálsörk, tekur hann fljótt eftir því að hann er ekki einn í kapphlaupinu. Nasistar leita einnig arkarinnar og eru tilbúnir að leggja allt í sölurnar til að komast yfir þennan dularfulla og volduga helgidóm. Það sem hefst sem fornleifaleit breytist því í æsispennandi kapphlaup um heiminn, þar sem Jones þarf að treysta á hugvit sitt, kjark og heppni til að komast undan óvininum.

Raiders of the Lost Ark er ein af þessum sjaldgæfu myndum sem skilgreina sína tegund og hafa haft gríðarleg áhrif á ævintýramyndir allar götur síðan. Steven Spielberg leikstýrir af einstöku öryggi og Harrison Ford er fullkominn sem Indiana Jones – hörkutól með húmor, mannlegan veikleika og ómótstæðilegan sjarma. Myndin er stórbrotin, spennandi og full af eftirminnilegum atriðum, en um leið ótrúlega skemmtileg og aðgengileg.

Þetta er einfaldlega ein af þessum myndum sem maður getur horft á aftur og aftur. Hún hefur ekki aðeins elst ótrúlega vel heldur er hún enn þann dag í dag fyrirmynd þess hvernig ævintýramynd á að vera.

Ath! Myndin er án texta.

LAUGARDAGINN 28. JÚNÍ

Tryggðu þér sæti

sjáðu stikluna