




Smárabíó býður upp á gjafabréf í bíó, á skemmtisvæðið sem eru tilvalin í jóla-, afmælis- eða tækifærisgjafir. Skemmtisvæðið inniheldur fjölbreytt úrval afþreyingar, þar má nefna lasertag, leiktækjasal og Fótboltaland! Aðeins er hægt að kaupa útprentuð gjafabréf í afgreiðslu okkar á 3. hæð Smárabíó.

Til að nýta öryrkja- eða eldri borgara afslætti þarf að sýna skírteini í miðasölu. Öryrkja- eða eldri borgara afslættir gilda ekki í Lúxussal.
Þriðjudagstilboð
Gildir ekki á Íslenskar myndir, í Lúxussal, né með öðrum tilboðum.
Nova 2F1
Nova býður öllum viðskiptavinum sínum 2 fyrir 1 í Smárabíó alla mánudaga og miðvikudaga með því að ná í SMS í gegnum Nova appið eða á heimasíðu þeirra www.nova.is. Tilboðið gildir ekki í Lúxussal, VIP sæti eða í 3D. Ekki er hægt að greiða Nova 2f1 með gjafabréfi eða boðsmiða.
Aur tilboð
Aur býður viðskiptavinum sínum upp á 5% endurgreiðslu af bíómiðum. Til að nýta tilboðið þarf að greiða með Aur kortinu og endurgreiðslan kemur sjálfkrafa inná kortið. Ath. gildir ekki í Lúxussal, VIP sæti eða í 3D
Farðu í bíó fyrir Aukakrónur
Smárabíó er í samstarfi við Aukakrónur. Þú getur því greitt með Aukakrónum fyrir bíómiða og veitingar í veitingasölu. Jafnframt safnar þú Aukakrónum þegar þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum en bíóin veita 5% afslátt í formi Aukakróna. Ath. gildir ekki af afsláttarmiðum.
Aukakrónukort
Landsbankinn býður handhöfum Aukakrónukortsins 2 fyrir 1 mánudaga til fimmtudaga í Smárabíói. Framvísa þarf kortinu og eingöngu hægt að fá miða fyrir tvo einstaklinga hverju sinni. Gildir ekki á íslenskar myndir né með öðrum tilboðum og reiknast frá almennu miðaverði. Ath. gildir ekki í Lúxussal, VIP sæti eða í 3D.
Bláa kortið
Arion banki býður handhöfum Bláa kortsins 25% afslátt alla daga í Smárabíói á allar almennar sýningar. Greiða þarf með kortinu og er eingöngu hægt að fá miða fyrir tvo einstaklinga hverju sinni. Gildir ekki með öðrum tilboðum og reiknast frá almennu miðaverði. Ath. Gildir ekki í Lúxussal, VIP sæti eða í 3D.
Íslandsbanki
Íslandsbanki býður viðskiptavinum sínum 50% endurgreiðslu af bíómiðum í Smárabíó á mánudögum. Endurgreiðslutilboðið birtist í Fríðu í appi Íslandsbanka á hverjum mánudegi. Það þarf að virkja tilboðið þar og svo er miði keyptur á hefðbundin hátt með debet- eða kreditkorti Íslandsbanka. Upplýsingar um vænta endurgreiðslu birtast í appi Íslandsbanka og hún er greidd út þann átjanda næsta mánaðar. Hámarksendurgreiðsla í hvert skipti er 1.220 kr.