Fjölskyldubíó: Spider-Man: Brand New Day
Leikstjóri:
Destin Daniel Cretton
Leikarar:
Tom Holland, Zendaya , Mark Ruffalo
Gerðu bíóferðina að bíóferð sem krakkarnir gleyma ekki!
Spider-Man verður á svæðinu í Smárabíó og krakkarnir fá tækifæri til að hitta hann og taka mynd saman. Fyrir þau yngstu verður einnig í boði óvæntur glaðningur.
Allir greiða barnaverð svo fjölskyldan geti notið saman.
Athugið: Myndin er með 12 ára aldurstakmark, en yngri börn eru velkomin í fylgd með fullorðnum.
Og bara til að taka allan vafa af því – þetta er ekki Tom Holland, heldur okkar eigin Spider-Man í búningi sem verður á svæðinu til að gera daginn extra skemmtilegan fyrir krakkana.🕷️
Við opnum svæðið kl. 12:00 svo allir fái tíma með Spider-Man áður en sýningin hefst.
Myndin er sýnd með ensku tali og íslenskum texta