CMS Image
Væntanleg
3.9.2026

Klassefesten: Vinir að eilífu

2026

99 mín

Aldurstakmark 14

No items found.

Leikstjóri:

Tilde Harkamp

Leikarar:

Nicolaj Kopernikus, Troels Lyby, Anders W. Berthelsen

Þrír seinheppnir æskuvinir á miðjum aldri standa á miklum tímamótum í lífinu og takast á við ólíkar áskoranir. Thomas hefur helgað sig uppeldi tvíbura sinna, Andreas telur sig loks hafa fundið ástina í lífi sínu án þess að hafa hitt hana í eigin persónu og Niels glímir við afleiðingar krabbameinsaðgerðar sem hafa áhrif á hann bæði líkamlega og andlega.

Þegar Niels fagnar fimmtugsafmæli sínu ákveða vinirnir að gleðja hann með óvæntri afmælisveislu í sumarbústað á Fjóni. Upphaflega stóð til að eiga rólega og notalega helgi en fljótlega umbreytist helgin í ævintýralega ferð sem mun seint gleymast. Í gegnum sameiginlega reynslu neyðast vinirnir til að horfast í augu við sjálfa sig, endurmeta lífið og enduruppgötva mikilvægi kærleikans, lífsgleðinnar og hinnar sönnu vináttu.

Ekki missa af þessari sprenghlægilegu gamanmynd þar sem flugbeitti danski húmorinn er upp á sitt besta.

LAUGARDAGINN 28. JÚNÍ

Tryggðu þér sæti

sjáðu stikluna