CMS Image
Væntanleg
1.10.2026

Verity

2026

117 mín

Aldurstakmark 12

No items found.

Leikstjóri:

Michael Showalter

Leikarar:

Dakota Johnson, Anne Hathaway, Josh Hartnett

Byggð á samnefndri metsölubók eftir Colleen Hoover. Colleen er einn þekktasti samtímahöfundur í rómantík og spennusögum. Hún hefur byggt upp gríðarlega stóran lesendahóp og hafa bækur hennar selst í yfir 50 milljónum eintaka á heimsvísu.

Lowen Ashleigh fær óvænt tækifæri sem gæti bjargað henni frá gjaldþroti: að ljúka bókaseríu fyrir hina þekktu Verity Crawford, sem getur ekki skrifað eftir alvarlegt slys.

Hún flytur inn á heimili Crawford-fjölskyldunnar til að fara yfir glósur og handrit. En í kyrrð hússins finnur hún fljótlega að eitthvað passar ekki. Í óútgefnum skrifum Verity leynist saga sem enginn virðist kannast við — og sem ætti kannski ekki að vera til.

Eftir því sem Lowen dvelur lengur í húsinu fer hún að efast um hvað hafi raunverulega gerst þar áður… og hvað sé enn að gerast.

LAUGARDAGINN 28. JÚNÍ

Tryggðu þér sæti

sjáðu stikluna