Gott að vita

Algengar spurningar og svör

Ég fékk ekki miðann minn sendan í tölvupósti

- Endilega kíktu í ruslhólfin þín! Ef þú finnur ekki miðann þar máttu gjarnan hafa samband.

- Ef þú ert með bókunarnúmer getur þú sett númerið í sjálfsala hjá okkur þegar þú mætir og þá prentast miðinn/miðarnir út. Einnig er hægt að prenta miðann/miðana út í miðasölunni.


Get ég fengið miðann minn endurgreiddan?

- Til að hætta við bókun og fá endurgreitt þarf að hafa samband við miðasöluna á midasala@smarabio.is ásamt bókunarnúmeri og símanúmeri með að minnsta kosti 4 tíma fyrirvara.

- Einnig er hægt að hringja í miðasöluna í síma 5640000

- Ekki er hægt að fá miðann endurgreiddann ef styttra en 4 tímar eru í sýningu - þá er í boði að fá að skipta um tíma eða fá boðsmiða.

- Ekki er hægt að fá miðann endurgreiddann né fá boðsmiða eftir að sýning hefst.


Hvernig nota ég gjafabréfið mitt?

- Þú getur notað gjafabréfið þitt á netinu, í Smárabíóappinu eða í sjálfsala hjá okkur!

- Til að nota gjafabréf á netinu ferð þú í gegnum ferlið eins og þú sért að versla almenna miða. Í 4. skefinu smellir þú á "nota kóða" og þá kemur miðinn á "0".

- Ef þú ert með fleiri en eitt gjafabréf, þá gerir þú eins og textinn hér að ofan segir, síðan smellir þú á "nota annan kóða" og slærð inn kóðann.

- Þegar búið er að setja inn alla kóðana, smellir þú á "kortagreiðsla" og færslan fer í gegn.


Hvernig nota ég Nova 2F1 tilboðið?

- Til að nota Nova 2F1 tilboðið á netinu velur þú "Nova 2F1 (2miðar) í fyrsta skrefinu, nóg er að velja einn svona miða þar sem tveir miðar eru inni í verðinu.

- Í fjórða skrefinu smellir þú á "nota kóða" og stimplar inn kóðann sem þú fékkst afhendan í Nova appinu eða í sms.

- Þegar búið er að smella á kóðann, smellirðu á kortagreiðsla og greiðir fyrir einn miða.

- ATH. Nova 2F1 gildir ekki í Lúxus, VIP sæti eða með öðrum tilboðum.

Hvernig nýti ég öryrkja eða eldri borgara afslátt?

- Hægt er að nýta öryrkja og eldri borgara afsláttinn hjá okkur á staðnum

- Ekki er hægt að nýta afsláttinn á netinu þar sem það þarf að framvísa skilríkjum á staðnum

- Öryrkja og eldri borgara afsláttur gildir ekki í Lúxussal


Afbókunarreglur

- Til að hætta við bókun og fá endurgreitt þarf að hafa samband við miðasöluna á midasala@smarabio.is ásamt bókunarnúmeri og símanúmeri með að minnsta kosti 4 tíma fyrirvara.

- Einnig er hægt að hringja í miðasöluna í síma 5640000

- Ekki er hægt að fá miðann endurgreiddann ef styttra en 4 tímar eru í sýningu - þá er í boði að skipta um dag/tíma eða fá boðsmiða.

- Ekki er hægt að fá miðann endurgreiddann né fá boðsmiða eftir að sýning hefst.

- Ekki er hægt að fá miðann endurgreiddann ef viðskiptavinur telur bíómyndina ófullnægjandi.


Almennar reglur og tilmæli

- Reykingar og veip er með öllu óheimilt í Smárabíói

- Notkun myndavéla eða kvikmyndaupptökuvéla er óheimil.

- Utanaðkomandi veitingar eru óheimilar.

- Óheimilt er að trufla aðra áhorfendur og skemma sýninguna fyrir öðrum t.d. með notkun farsíma.

- Starfsfólk Smárabíós hefur rétt á að vísa þeim á þyr sem hafa truflað sýningar eða brotið reglur kvikmyndahússins án þess að endurgreiða þeim miðann. Við alvarlegustu aðstæður verður málum vísað til lögreglu.

- Smárabíó fylgir lögum um kvikmyndaskoðun nr. 62/2006 varðandi aldurstakmörk á myndir.

- Starfsfólk Smárabíós hefur rétt á að neita að selja miða ef viðkomandi er undir þeim aldurstakmörkum sem myndin leyfir, sbr. það sem lög segja til um.

- Starfsfólk Smárabíós hefur rétt á að óska eftir skilríkjum þess sem kaupir bíómiða ef myndin er bönnuð innan ákveðins aldurs eða til þess að staðfesta aldur ef um afslátt er að ræða.

- Smárabíó lætur tölvupóstföng aldrei í hendur þriðja aðila.

- Vefur Smárabíós meðhöndlar engar kortaupplýsingar.

- Allar kortaafgreiðslur fara í gegnum örugga síðu Rapyd á Íslandi.

Algengar spurningar og svör um afmæli

Hérna eru atriði sem gott er að hafa í huga ef þú heldur uppá afmæli í Smárabíói:


Almennt

- Mælt er með því að mæta 5 til 10 mínútum áður en afmælisgestir mæta til þess að hafa tíma til að koma sér fyrir á afmælissvæði og tala við þann starfsmann sem sér um afmælið.

- Öll afmælisbörn fá afmælisgjöf, þótt það séu 2 eða fleiri að halda saman.

- Greitt er fyrir þann fjölda sem staðfestur er sólarhring áður, fullt verð fyrir fjöldann sem mætir og 1.000kr á mann fyrir fjölda umfram upp að staðfestum fjölda .

- Lágmark þarf að greiða fyrir 10 manns.

- Utanaðkomandi veitingar eru ekki leyfðar nema tekið sé afmæli með pizzuveislu, þá eru afmæliskökur leyfðar.  


Afmæli með pizzu

- Utanaðkomandi veitingar eru ekki leyfðar fyrir utan afmæliskökur.

- Borðbúnaður fylgir með þegar bókað er afmæli með pizzu, borðbúnaðurinn sem fylgir er eftirfarandi: skeiðar, diskar, glös, servíettur.

- Reiknað er með 2 pizzusneiðum á mann.


Lasertagafmæli

- Gott er að hafa nafnalista yfir afmælisgesti meðferðis, það flýtir fyrir skráningu í lasertaginu.

- Lasertagið tekur allt að 24 manns í einu og hver leikur tekur 7 mínútur nema um annað sé samið.


Leikjaafmæli og leikjaviðbót

- Skila þarf öllum leikjakortum til starfsmanns eftir að tíminn rennur út.

- Allar tegundir af leikjakortum virka í öll tækin en aðeins einu sinni í Virtual Rabbits.

- Leikjaafmæli eru einungis í boði á virkum dögum.


Skilmálar barnaafmælis

- Bíósýningar eru almennar sýningar og því almennur sýningartími.

- Foreldrar og forráðamenn bera fulla ábyrgð á börnunum og eru vinsamlegast beðin um að virða aðra gesti bíósins.

- Ráðlagt er að einn foreldri/forráðamaður hafi umsjón með 5-7 börnum, 12 ára og yngri.

- Ekki er heimilt að skilja börnin ein eftir inni í sal.

- Gestir eru á eigin ábyrgð að koma sér í salinn.

- Einungis er hægt að bóka afmælissvæði þegar bókað er afmæli með pizzum frá okkur.

- Ekki er leyfilegt að mæta með utanaðkomandi veitingar nema bókað sé afmælissvæði s.s. afmæli með pizzum frá  okkur.

- Í Smárabíói eru tekin frá sæti vegna sætavals.

- Borgað er fyrir þá forráðamenn sem sitja sýningu.

Hafa samband